Kvikmyndasjóður
KYNNINGAREFNI SEM STYRKÞEGAR SKULU SKILA INN TIL KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS
Styrkþegar sem hljóta framleiðslustyrk hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands er skylt að afhenda Kvikmyndamiðstöð Íslands það kynningarefni sem tiltekið er í grein 5.5. í úthlutunarsamningi. Styrkþegar sem ekki standa í skilum skv. úthlutunarsamningi, fá styrk sinn ekki greiddan.
Styrkþegum er skylt skv. úthlutunarsamningi að afhenda Kvikmyndamiðstöð Íslands kynningarefni að minnsta kosti tvisvar sinnum á framleiðsluferlinu; við undirritun úthlutunarsamnings og áður en lokagreiðsla er innt af hendi. Að neðan má finna eyðublöð sem styrkþegum ber að fylla út og skila til Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, sem og upplýsingar um annað kynningarefni. Styrkþegum er bent á að þessi listi er ekki tæmandi yfir skilaskylt efni. Slíkan lista er að finna í úthlutunarsamningi.
Hér má nálgast gátlista yfir kynningarefni sem skilað skal til KMÍ.
Hér má nálgast eyðublað sem skilað skal til KMÍ við undirritun úthlutunarsamnings.

