Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

The Sea

Samkomulag um kvikmyndagerð

SAMKOMULAG UM KVIKMYNDAGERÐ

Menntamalaráðherra, fjármálaráðherra og samtök í íslenskri kvikmyndagerð gera með sér eftirfarandi samkomulag um stefnumörkun til að efla íslenska kvikmyndagerð.

1. gr.

kvikmynd er átt við kvikmyndir eins og þær hafa verið skilgreindar til þess að geta hlotið framleiðslustyrk úr Kvikmyndasjóði skv. lögum nr. 137/2001 og reglugerð nr. 229/2003 um sjóðinn.

Stefnt er að því að leggja áherslu á barna- og fjölskyldumyndir í fullri lengd með væntingar um að myndir í þeim flokki verði framleiddar annað hvert ár að minnsta kosti.

2. gr.

Aðilar eru sammála um að miða við að meðalframleiðslukostnaður kvikmynda verði í lok samningstímans 210 milljónir króna. Heildarframlag til framleiðslustyrkja kvikmynda verði því 420 milljónir króna árið 2010.

3. gr.

Aðilar eru sammála um að veita stuðning við samframleiðslu kvikmynda í fullri lengd.

Stefnt skal að því að Kvikmyndasjóður geti varið 30 milljónum króna árlega til þátttöku í erlendum samframleiðslusjóðum.

4. gr.

Aðilar eru sammála um að efla aðrar greinar kvikmyndagerðar en framleiðslu leikinna kvikmynda í fullri lengd, s.s. gerð heimildamynda, stuttmynda og hreyfimynda. Aðilar eru sammála um að stefnt skuli að því að Kvikmyndasjóður geti í lok samningstímans varið 125 milljónum króna árlega til framleiðslustyrkja vegna slíkra verkefna. Hlutfall framleiðslustyrks vegna heimilda- og stuttmynda verði allt að 50%.

5. gr.

Aðilar eru sammála um að efla framleiðslu á íslenskum þáttaröðum fyrir sjónvarp og að í lok samningstímans verði 125 milljónum króna varið til slíkra verkefna.

Við úthlutun úr Sjónvarpssjóði skal stefnt að því að leggja áherslu á barna- og fjölskylduefni.

6. gr.

Aðilar eru sammála um að með þessum framleiðslustyrkjum geti íslensk kvikmyndagerð betur gegnt hlutverki sínu í íslensku menningarlífi.

7. gr.

Aðilar eru sammála um að umfang annarrar starfsemi Kvikmyndamiðstöðvar verði í svipuðu horfi og nú, að teknu tilliti til aukinnar kynningarstarfsemi vegna fleiri verkefna. Kostnaður vegna reksturs og kynningarverkefna skal áfram vera aðskilinn frá kvikmyndasjóðum.

8. gr.

Við framkvæmd 2., 3., 4. og 5. gr. samningsins er miðað við að áfangaskipting verði með þessum hætti:

2007

2008

2009

2010

Sjónvarpssjóður

50

80

95

125

Heimildamyndasjóður

100

110

115

125

Kvikmyndasjóður

310

340

380

420

Samframleiðsla

30

30

30

30

Samtals

490

560

620

700



9. gr.

Menntamálaráðherra og fjármálaráðherra munu, með fyrirvara um samþykki Alþingis, beita sér fyrir því að markmið samkomulagsins náist í þeim áföngum sem lýst er í 8. gr.

Reykjavík, 14. nóvember 2006



Menntamálaráðherra
Fjármálaráðherra
Samtök kvikmyndaleikstjóra
Framleiðendafélagið SÍK
Félag kvikmyndagerðarmanna