Framleiðslustyrkir
FRAMLEIÐSLUSTYRKIR FYRIR LEIKNAR KVIKMYNDIR
Framleiðslustyrkir eru einungis veittir íslenskum framleiðslufyrirtækjum sem hafa kvikmyndagerð að meginstarfi. Þar sem styrkur kvikmyndasjóðs opnar oft dyr að annarri fjármögnun er æskilegt að sækja um með góðum fyrirvara.Afgreiðsla sjóðsins tekur að jafnaði 6-8 vikur. Fáist jákvætt svar við umsókn er gefið út vilyrði fyrir styrk. Áður en unnt er að ganga frá samningi milli framleiðanda og Kvikmyndasjóðs þarf fjármögnun að vera að fullu lokið ásamt öðrum ákvæðum reglugerðar. Ganga verður frá samningi áður en tökur á kvikmyndinni hefjast.
Umsækjendur þurfa að fylla út umsóknareyðublað KMÍ.
Umsóknareyðublaðið er hægt að ná í á .pdf formi hér að neðan.
Umsækjendur þurfa að skila þeim fylgigögnum sem talin eru upp í útlistun viðkomandi styrkja.
Öllum umsóknum og fylgigögnum þarf að skila inn í tveimur eintökum. Að auki skal skila inn einu eintaki á rafrænu formi.
Hægt er að nálgast gátlista á .pdf vegna umsókna fyrir framleiðslustyrki hér.
Hægt er að nálgast kostnaðaráætlun á .xls fyrir leiknar kvikmyndir hér.
Hægt er að nálgast KMÍ umsóknareyðublaðið á .pdf hér.

