Handritsstyrkir
HANDRITSSTYRKIR FYRIR LEIKNAR KVIKMYNDIR
Handritsstyrkir vegna leikins efnis eru veittir í allt að þremur hlutum. Sækja þarf sérstaklega um hvern hluta. Skila þarf neðangreindum gögnum.I. hluti 400 þús. kr
Skila þarf:
- Söguþræði (synopsis)
- Efnisútdrætti (treatment)
- Gögn á gátlista hér að neðan
II. hluti 400 þús. kr.
Skila þarf:
- Fyrsta uppkasti af handriti
III. hluti 400 þús kr.
Skila þarf:
- Öðru/þriðja uppkasti af handriti
- Það styrkir umsóknina að hafa vilyrði frá framleiðslufyrirtæki
Umsækjendur þurfa að fylla út umsóknareyðublað KMÍ.
Umsóknareyðublaðið er hægt að ná í á .pdf formi hér að neðan.
Umsækjendur þurfa að skila þeim fylgigögnum sem talin eru upp í útlistun viðkomandi styrkja.
Öllum umsóknum og fylgigögnum þarf að skila inn í tveimur eintökum. Að auki skal skila inn einu eintaki á rafrænu formi.
Hægt er að nálgast gátlista á .pdf vegna umsókna fyrir handritsstyrki hér.
Hægt er að nálgast KMÍ umsóknareyðublaðið á .pdf hér.

