Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Um Kvikmyndamiðstöð Íslands

VERKSVIÐ KVIKMYNDASTÖÐVAR ÍSLANDS

Meðal helstu verkefna Kvikmyndamiðstöðvar Íslands er að styrkja framleiðslu íslenskra kvikmynda, vinna að kynningu og dreifingu þeirra, efla kvikmyndamenningu á Íslandi og stuðla að auknum samskiptum við erlenda aðila. Menntamálaráðherra fer með yfirumsjón kvikmyndamála og skipar forstöðumann til fimm ára í senn. Tekjur Kvikmyndamiðstöðvar eru árlegt framlag í fjárlögum.

Kvikmyndamiðstöð starfar samkvæmt kvikmyndalögum sem voru samþykkt á Alþingi árið 2001 og tóku gildi í ársbyrjun 2003. Kvikmyndasjóður starfar á vegum Kvikmyndamiðstöðvarinnar.

Kvikmyndasjóður veitir styrki til handritsgerðar, þróunar verkefna og framleiðslu. Sjóðurinn skiptist í þrjá flokka: leiknar kvikmyndir í fullri lengd, stutt- og heimildamyndir og leikið sjónvarpsefni. Styrkir eru veittir framleiðendum sem hafa kvikmyndagerð að aðalstarfi. Styrkir úr Kvikmyndasjóði ná aðeins að fjármagna verkefni að hluta og í mesta lagi 50% af áætluðum kostnaði. Það sem upp á vantar þarf framleiðandi að afla annars staðar.

Tekið er við umsóknum árið um kring og er afgreiðslutíminn alla jafna átta vikur. Sérstakir kvikmyndaráðgjafar fara yfir og meta umsóknir en forstöðumaður KMÍ tekur svo endanlega ákvörðun um veitingu fjárstuðnings í samræmi við skilyrði þeirrar reglugerðar sem liggur til grundvallar slíkum úthlutunum.

Kvikmyndamiðstöð hefur stutt við og verið í samstarfi við kvikmyndahátíðir hér á landi og stendur jafnframt fyrir námskeiðum og kynningum fyrir fagfólk í greininni.

Kynningar á íslenskum myndum fara að mestu fram á erlendum kvikmyndahátíðum en Kvikmyndamiðstöð ræktar öflugt tengslanet við helstu hátíðir um allan heim. Einnig er unnið að kynningum þar sem íslenskar myndir eru í sérstakri dagskrá og þá yfirleitt í samstarfi við fagmenn á hverjum stað fyrir sig.

hægt er að lesa yfir lögin hér

hægt er að lesa yfir reglugerðina hér

KVIKMYNDARÁÐ

Menntamálaráðherra fer með yfirstjórn kvikmyndamála og hefur sér til fulltingis sjö manna kvikmyndaráð sem ætlað er að veita stjórnvöldum ráðgjöf og gera tillögur um stefnu og markmið á sviði kvikmyndalistar. Ráðherrann skipar í kvikmyndaráð til þriggja ára í senn, formann og varaformann án tilnefningar, en hina fimm fulltrúana samkvæmt tilnefningum eftirtalinna aðila: Félags kvikmyndagerðarmanna, Framleiðendafélagsins-SÍK, Samtaka kvikmyndaleikstjóra, Félags kvikmyndahúsaeigenda og Bandalags íslenskra listamanna. Varamenn eru skipaðir með sama hætti.

Kvikmyndaráð er þannig skipað:

Ólafur H. Torfason, formaður, skipaður án tilnefningar

Sigríður Pétursdóttir, varaformaður, skipuð án tilnefningar

Hrafnhildur Gunnarsdóttir, tilnefnd af Félagi kvikmyndagerðarmanna (FK)

Ari Kristinsson, tilnefndur af  Framleiðendafélaginu - SÍK

Hilmar Oddsson, tilnefndur af Samtökum kvikmyndaleikstjóra (SKL)

Ágúst Guðmundsson, tilefndur af Bandalagi íslenskra listamanna

Þorvaldur Árnason, tilnefndur af Félagi kvikmyndahúsaeigenda

 

Varamenn:

Grímur Atlason, skipaður án tilnefningar

Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, skipuð án tilnefningar

Hjálmtýr Heiðdal, tilnefndur af Félagi kvikmyndagerðarmanna (FK)

Anna María Karlsdóttir, tilnefnd af  Framleiðendafélaginu - SÍK

Kristín Jóhannesdóttir, tilnefnd af Samtökum kvikmyndaleikstjóra (SKL)

Björn Sigurðsson, tilnefndur af Félagi kvikmyndahúsaeigenda

Ásdís Thoroddsen, tilnefnd af Bandalagi íslenskra listamanna


 

 

 

efnisyfirlit síðunnar