Um KMÍ
Á döfinni

13.5.2019

Gamanmyndahátíð Flateyrar hefur opnað fyrir innsendingar á gamanmyndum


Gamanmyndahátíð Flateyrar verður haldin í fjórða sinn þann 19. - 22. september og hefur nú opnað fyrir innsendingar á gamanmyndum.

Í ár verður sú nýbreytni að bæði verða sýndar íslenskar og erlendar gamanmyndir. Á undanförnum árum hafa aðeins verið sýndar íslenskar myndir á hátíðinni en með alþjóðavæðingu hátíðarinnar undir nafninu Icelandic Comedy Film Festival vonast skipuleggjendur til þess að geta boðið landsmönnum upp á enn fleiri og enn fyndnari gamanmyndir frá öllum heimshornum þó megin áherslan verði áfram á fyndið íslenskt efni. 

Hægt er að senda inn myndir á hátíðina í gegnum Filmfreeway (https://filmfreeway.com/IcelandComedyFilmFestival) og kostar ekkert að senda inn íslenskar myndir. Lokað verður fyrir innsendingu mynda þann. 1. ágúst. Einu kröfunar sem eru gerðar eru að myndirnar séu fyndnar og að þær hafi ekki verið sýndar á hátíðinni áður. Myndirnar mega vera leiknar, teiknaðar eða heimildamyndir, jafnt gamlar sem nýjar. Innsendingarnefndin mun leggja meiri áherslu á að myndin sé fyndin, fremur en fullkomin. 

Veitt verða verðlaun í nokkrum flokkum í ár, fyndnasta íslenska myndin og fyndnasta erlenda myndin auk þess sem veitt verða verðlaun fyrir fyndnasta karakterinn og fyndnustu senuna. Þá verða heiðursverðlaun hátíðarinnar einnig á sínum stað.

Gamanmyndahátíð Flateyrar hefur farið ört vaxandi undanfarin ár, en alls sóttu tæplega þúsund gestir viðburði hátíðarinnar í fyrra. Hátíðin var tilnefnd á Eyrarrósarlistann í ár, sem framúrskarandi menningarviðburður á landsbyggðinni enda er boðið upp á margvíslega viðburði á hátíðinni fyrir utan gamanmyndasýningar. Til að mynda verður í ár boðið upp á gamansama leiksýningu, uppistand, tónleika, matarveislur, vinnusmiðjur og sveitaball.

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um hátíðina á vefsíðu hennar: https://www.icelandcomedyfilmfestival.com/