Um KMÍ
Á döfinni
  • InTouchIDFA-Awardshow-101

26.11.2018

In Touch vinnur til verðlauna í aðalkeppni á IDFA

Íslenska/pólska heimildarmyndin In Touch eftir Pawel Ziemilski vann til sérstakra dómnefndaverðlauna í aðalkeppni á IDFA , einni stærstu heimildarmyndahátíð í heimi, sem fór fram í Amsterdam dagana 14. - 25. nóvember. Mikill heiður þykir að vinna til verðlauna á IDFA en árlega sækja yfir 3.000 myndir um að komast að á hátíðinni og eingöngu um 80 keppa til alþjóðlegra verðlauna. Myndin er fyrsta íslenska heimildarmyndin til að vinna til verðlauna í aðalkeppni á hátíðinni. 

In Touch er framleidd af Lukasz Dluglecki og Hauki M. Hrafnsyni fyrir NUR og meðframleidd af Antoni Máni Svanssyni fyrir Join Motion Pictures. Fjölmargir Íslendingar komu að gerð myndarinnar sem tekin var upp að miklu leyti á Íslandi. Þar á meðal sá Ásta Júlía Guðjónsdóttir um kvikmyndatökur hér á landi, Haukur M. kom að handritsgerðinni og frumsamin tónlist er eftir Árna Val Kristinsson.

Þorpið Stare Juchy í Póllandi tvístrast eftir að þriðjungur íbúa þess hverfur til starfa á Íslandi. Þeir sem eftir eru, flestir af eldri kynslóðinni, halda í vonina að börn þeirra og barnabörn snúi einn daginn tilbaka þrátt fyrir að hafa hafið nýtt líf hinum megin í Evrópu. Fjarlægðin á milli  þeirra er mikil og ferðin er dýr, svo fjölskyldur fá ekki að faðmast eins oft og þær kjósa.  Besta í stöðunni er að vera í tíðu og áköfu sambandi í gegnum Skype.

Í In Touch gerir Pawel Ziemilski, leikstjóri myndarinnar,  tilraun til þess að færa þessar brotnu fjölskyldur saman á ný á sjónrænan hátt með endurvarpi hreyfimynda á bakgrunn sem hefur sérstakt gildi og merkingu fyrir þá sem eiga hlut að máli; á veggi æskuheimilisins, félagsheimilisins , út í náttúrunni, á ástvini.  Útkoman er einlæg og frumleg kvikmynd um raunveruleika sem svo margir búa við og eilíflegar tilfinningar líkt og heimþrá og fjölskylduást. 

Árið 2009 varð Draumalandið eftir Andra Snæ Magnason fyrst íslenskra mynda til að vera valin til þátttöku í aðalkeppni hátíðarinnar og síðan þá hafa eingöngu þrjár íslenskar myndir keppt til verðlauna á hátíðinni; Fálkasaga eftir Þorkel S. Harðarson og Örn Marinó Arnarson og hin bresk/íslenska Future of Hope eftir Henry Bateman voru valdar til keppni árið 2010 og hin spænsk/íslenska La Chana var valin til keppni árið 2016 og vann til áhorfendaverðlauna.