Um KMÍ
Á döfinni

12.2.2018

Jóhann Jóhannsson látinn

Jóhann Jóhannsson tónskáld er látinn, 48 ára að aldri. Hann fannst látinn á heimili sínu í Berlín þann 9. febrúar.

Jóhann átti að baki mjög farsælan feril og spilaði meðal annars í hljómsveitunum Daisy Hill Puppy Farm,  HAM, Lhooq, Apparat Organ Quartet og the Kitchen Motors Collective. 

Hann samdi tónlist við fjöldan allan af íslenskum kvikmyndaverkum, síðast sjónvarpsþættina Ófærð en einnig 16 ár að sumri, Jöklarinn, Blikkið - Saga Melavallarins, Svartir englar, Bræðrabylta, Blóðbönd, Dís, Hrein og bein. Sögur úr íslensku samfélagi, Maður eins og ég, ERRÓ - norður - suður - austur - vestur, Óskabörn þjóðarinnar, Íslenski draumurinn og Corpus Camera
Jóhann samdi einnig tónlistina við heimildamyndina Sumarlok sem hann leikstýrði og skrifaði handritið að.

Ferill hans sem kvikmyndatónskáld var glæsilegur og var hann meðal annars tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir tónlist sína í myndunum Sicario og The Theory of Everything. Jóhann hlaut Golden Globe verðlaun fyrir tónlist sína í The Theory of Everything og var einnig tilnefndur fyrir Arrival. Jóhann hlaut auk þess þrjár tilnefningar til BAFTA verðlauna fyrir tónlist sína í Arrival, Sicario og The Theory of Everything. Þá hlaut hann Grammy tilnefningar fyrir Arrival og The Theory of Everything.

Jóhann var ókvæntur og lætur eftir sig eina uppkomna dóttur.