Um KMÍ
Á döfinni

12.3.2019

Lof mér að falla valin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Hong Kong

Lof mér að falla eftir Baldvin Z hefur verið valin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Hong Kong, sem mun fara fram dagana 18. mars - 1. apríl 2019. Kvikmyndahátíðin er ein af stærstu menningarviðburðunum í Hong Kong og sýnir yfir 280 myndir frá 50 löndum. 

Lof mér að falla var frumsýnd alþjóðlega á kvikmyndahátíðinni í Toronto síðasta haust og fjallar um hina 15 ára Magneu sem kynnist 18 ára Stellu, en þá breytist allt. Magnea laðast að hispurslausu lífi Stellu og þróar Magnea sterkar tilfinningar til hennar sem Stella notfærir sér til eigin hagsbóta. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkniefna sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir þær báðar. 12 árum síðar liggja leiðir þeirra óvænt saman og verður uppgjör á milli þeirra óumflýjanlegt.

Nánari upplýsingar um hátíðina má finna á heimasíðu hennar.