Um KMÍ
Á döfinni

21.1.2020

Margrét Einarsdóttir búningahönnuður vinnur til Guldbaggen verðlaunanna

Margrét Einarsdóttir búningahönnuður vann til Guldbaggen verðlauna sænsku kvikmyndaakademíunnar fyrir búninga ársins í kvikmyndinni Eld & lågor eftir Måns Mårlind og Björn Stein. Verðlaunaafhendingin fór fram í gærkvöldi. 

Myndin Eld & lågor vann einnig bestu tónlist ársins sem er eftir Nathaniel Méchaly, en  myndin var tilnefnd fyrir bestu kvikmyndatöku ársins, bestu förðun/gervi ársins,búninga ársins, tónlist ársins, leikmynd ársins og brellur ársins.

Margrét er vel þekkt í kvikmyndaheiminum en hún hefur m.a. unnið til nokkurra Edduverðlauna fyrir búninga ársins eins og í kvikmyndunum Hrútar, Vonarstræti og Á annan veg.


Mynd: Guldbaggen