Um KMÍ
Á döfinni

7.10.2019

Myndin Munaðarleysingjaheimilið vann Gullna lundann á RIFF

Verðlaun voru veitt síðastliðin laugardag til sigurvegara hátíðarinnar RIFF í Norræna húsinu í sextánda skiptið. Hátíðinni er nú formlega lokið.

Aðalverðlaunin voru veitt til myndarinnar Munaðarleysingjaheimilið eða The Orphanage eftir Shahrbanoo Sadat sem Katja Adomeit framleiddi. Katja var viðstödd afhendinguna og tók við verðlaununum.

Um myndina segir:
Á seinni hluta níunda áratugarins býr hinn fimmtán ára Qodrat á götum Kabúls og selur bíómiða á svörtum markaði. Hann er mikill aðdáandi Bollywood mynda og lifir sig sterkt inn í uppáhalds atriðin úr myndunum. Dag einn fer lögreglan með hann á sovéska munaðarleysingjahælið. En stjórnmálaástandið er að breytast í Kabúl. Qodrat og öll börnin vilja verja heimili sitt.

Stikla úr The Orphanage:
https://www.youtube.com/watch?v=hgsjbrAurGg

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir afhenti verðlaunin og sagði af tilefninu að þrátt fyrir lítil fjárráð tækist kvikmyndagerðarmönnunum að endurskapa litríkan heim Afganistan tíunda áratugarins.

Sérstaklega var minnst á myndina Síðasta haustið eftir Yrsu Roca Fannberg. En þetta er í annað skiptið í 16 ára sögu RIFF sem mynd eftir Íslending er samþykkt í keppnina. Fékk hún sérstaka umfjöllun dómnefndar ásamt myndunum Corpus Christi og Maternal.

Í flokknum Önnur framtíð vann myndin Ferðalangur að nóttu. Flokkurinn Önnur framtíð er metnaðarfullt framlag RIFF til Reykvíkinga þar sem reynt er að sýna áhorfendum það sem er helst á döfinni í heimildarmyndagerð. Erfiðum spurningum er kastað fram. Getum við haldið í það lífsmynstur sem við erum vön eða er kominn tími til að breyta til? Ræður plánetan við ágang mannsins? Komum við vel fram hvert við annað? Í flokknum Önnur framtíð er að finna áhrifamiklar kvikmyndir um mannréttinda- og umhverfismál. Bíó getur breytt heiminum.

Dómnefndin minntist sérstaklega á myndina Guðirnir í Molenbeek sem heillaði dómnefndina en verðlaunin fóru til Ferðalangur að nóttu.

Um myndina Ferðalangur að nóttu eftir Hassan Fazili segir: Þegar talíbanar setja fé til höfuðs afganska leikstjóranum Hassan Fazili neyðist hann til að flýja ásamt eiginkonu og tveimur dætrum. Fazili fangar frá fyrstu hendi þá hættu sem mætir hælisleitendum og ástina sem ríkir í fjölskyldu á flótta.
Midnight Traveller

Í flokknum Íslenskar stuttmyndir vann myndin Blaðberinn eftir Ninnu Pálmadóttur. Dómnefndin minntist einnig á stuttmyndina Gulrætur eftir Berg Árnason en myndin Blaðberinn eftir Ninnu vann.

Í flokknum Gullna eggið vann myndin Muero Por Volver eftir Javier Marco.