Um KMÍ
Á döfinni

2.2.2017

Nordisk Panorama býður afslátt af passa á Hot Docs

Heimildamyndahátíðin Hot Docs mun fara fram í Toronto í Kanada frá 27. apríl til 7. maí næstkomandi. Nordisk Panorama hátíðin er ein af samstarfsaðilum Hot Docs hátíðarinnar og býður tilvonandi norrænum þáttakendum afslátt af passa á Hot Docs hátíðina. Umsóknarfrestur rennur út 7. mars.

Með passa hlýst aðgangur að sýningum, Hot Docs Forum, alþjóðlegum samframleiðsludegi, DocShop og fleiri atburðum.

Til að sækja um þarf að senda Christinu Jul Gregersen, Forum Manager hjá Nordisk Panorama, tölvupóst á christina@nordiskpanorama.com með nafni, fyrirtæki og tölvupóstfangi allra þátttakenda.

Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Nordisk Panorama.