Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

myrin

FRÉTTIR

Umsóknarfrestur

6.5.2003

Kvikmyndamiðstöð Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki til gerðar:

? stuttmynda

? heimildamynda

? leikinna kvikmynda í fullri lengd

? leikins sjónvarpsefnis

Úthlutað verður samkvæmt nýrri reglugerð um Kvikmyndasjóð nr. 229/2003.

Umsóknir sem skilað var inn áður óskast staðfestar með hliðsjón af henni og nýjum umsóknargögnum.

Umsóknargögn má nálgast á vef Kvikmyndamiðstöðvar Íslands eða á skrifstofunni við Túngötu 14, Reykjavík.

? Frestur til að skila inn umsóknum um styrki til framleiðslu sem fyrirhuguð er á þessu ári er til 12. maí n.k. og er miðað við að afgreiðslu þeirra verði lokið í síðasta lagi 12. júní n.k.

? Frestur til að skila inn umsóknum um vilyrði vegna framleiðslu á árínu 2004 er til 12. maí n.k. og er stefnt á að afgreiða þá fyrir 1. júlí n.k.

? Umsóknarfrestur vegna handrits-, þróunar-, eftirvinnslu- og kynningarstyrkja til leikinna kvikmynda í fullri lengd og leikins sjónvarpsefnis er til 20. júní og er miðað við að afgreiða þá í síðasta lagi 1. september n.k.

? Umsónknarfrestur vegna allra tegunda styrkja til stutt- og heimildamyndagerðar er til 12. maí og mun afgreiðslu þeirra ljúka í síðasta lagi 12. júní.

Athugið að næsti frestur til að skila inn umsóknum um framleiðslustyrk og vilyrði til framleiðslu verður 1. september n.k. og til annarra greina kvikmyndagerðar 1. október n.k. og er miðað við að þær verði afgreiddar 8 vikum eftir að umsóknarfresti lýkur.

Smelltu hér til að ná í umsóknareyðublöð.

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar