Kínverjar kaupa íslenskar myndir
12.11.2003
Sendinefnd á vegum Kínversku sjónvarpsstöðvarinnar CCTV verður hér á landi dagana 16. og 17. nóvember. Erindi þeirra er að kaupa íslenskar kvikmyndir og heimildarmyndir fyrir kvikmyndarás CCTV (China Movie Channel). Rétthafar kvikmynda og heimildarmynda geta komið prentuðum upplýsingum um efni sitt til Kvikmyndamiðstöðvar fyrir kl. 13.00 föstudaginn 14. nóvember. Ef frekari upplýsinga er óskað er bent á að hafa samband við Elfu Ýr Gylfadóttur á Kvikmyndamiðstöð.
Upplýsingar um sendinefndina og stöðina: CCTV er stærsta sjónvarpsstöðin í Kína. Það eru 11 stöðvar á þeirra vegum og er sent út um 200 klst. af efni daglega. Stöðvarnar ná til 90% landsmanna, eða um eins milljarðs manna. Stöðin er einnig með gervihnattasendingar víða um heim á ensku. Þeir eru með skrifstofu í 11 löndum og kaupa efni um allan heim.
Sendinefndin sem nú kemur til landsins eru:
Mr. Tao JIANG, CFO of China Movie Channel
Mr. Jian LI, Head of Acquisition of China Movie Channel
Mr. Shiyu ZHANG, Head of Acquisition of China Movie Channel