FRÉTTIR
Velkomin á nýjan vef Kvikmyndamiðstöðvar Íslands
Eins og glöggt má sjá hefur vefur Kvikmyndamiðstöðvar Íslands verið endurnýjaður og eru nú íslensku og ensku hlutar vefsins aðskildir. Slóðin fyrir enska hlutann er www.icelandicfilmcentre.is og slóðin fyrir íslenska hlutann er www.kvikmyndamidstod.is. Hægt er að komast á hvorn hlutann um sig frá hinum. Á vefnum er að finna mikið magn hverskonar upplýsinga um starfsemi KMÍ sem og um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsgeirann. Þá er þarna að finna fjölmarga tengla á ýmsa aðila, bæði innanlands og utan, sem koma að kvikmyndamálum.
Vefurinn er unnin í eplica vefumsjónarkerfinu sem Hugsmiðjan á og rekur.

