FRÉTTIR
SMÁFUGLAR RÚNARS VINNA Í MELBOURNE
Smáfuglar, nýjasta stuttmynd Rúnars Rúnarssonar, sem tilnefnd var til Gullpálmans á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor, heldur áfram að sópa til sín verðlaunum, nú síðast á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Melbourne (MIFF), Ástralíu.
Smáfuglar hlaut verðlaun í stuttmyndaflokknum MIFF shorts awards og fékk þar aðalverðlaunin – Best fiction film at MIFF.
MIFF er stærsta kvikmyndahátíð Ástralíu sem laðar til sín mikinn fjölda gesta ár hvert en áætlað er að ríflega 180.000 miðar séu seldir á sýningar hátíðarinnar ár hvert. MIFF er ein af elstu kvikmyndahátíðum í heimi og heldur upp á 57 ára afmæli sitt á þessu ári.
Smáfuglar halda áfram ferð sinni um heiminn og mun myndin á næstunni ferðast meðal annars til Svíþjóðar, Suður Frakklands, Sarajevo og Bandaríkjanna.
www.melbournefilmfestival.com.au

