FRÉTTIR
SMÁFUGLAR OG SÍÐASTI BÆRINN
Ekkert lát er á viðurkenningum fyrir stuttmyndir Rúnars Rúnarssonar, en laugardaginn 29. nóvember s.l. unnu Smáfuglar, nýjasta stuttmynd Rúnars, aðalverðlaunin (Grand Prix for the best film) á stuttmyndahátíð á Ítalíu. Um er að ræða vel þekkta hátíð þar í landi sem haldin var í 13. sinn og heitir Siena International Short Film Festival. Alls kepptu 60 stuttmyndir alls staðar að úr heiminum um verðlaunin en eins og fyrr segir hrepptu Smáfuglar hnossið.
Þessu til viðbótar vann eldri mynd Rúnars, Síðasti bærinn, önnur verðlaun á Rehoboth Film Society í Delaware í Bandaríkjunum (second place for the best short film). Síðasti bærinn var eins og margir vita tilnefnd til Óskarsverðlauna árið 2006 og er fyrsta stuttmyndin í þríleik Rúnars. Önnur myndin í þríleiknum eru Smáfuglar en þriðja myndin hefur enn ekki litið dagsins ljós.

