FRÉTTIR
Kaldaljós opnar Gautaborgarhátíðina
Þrjár aðrar íslenskar myndir sýndar á hátíðinni
Kaldaljós eftir Hilmar Oddsson verður opnunarmynd Gautaborgarhátíðarinnar í ár. Hátíðin hefst þann 23. janúar n.k. Þetta er í annað skiptið sem íslensk bíómynd opnar hátíðina en árið 2000 var Englar alheimsins í því hlutverki. Á hátíðinni í ár verða jafnframt sýndar þrjár aðrar íslenskar myndir, heimildarmyndin Hestasaga eftir Þorfinn Guðnason og stuttmyndirnar Burst eftir Reyni Lyngdal og Karamellumyndin eftir Gunnar B. Guðmundsson, en hún hlaut Edduna á síðasta ári sem stuttmynd ársins.
Í Morgunblaðinu í gær er haft eftir Jannike Ahlund, framkvæmdastjóra hátíðarinnar, að Kaldaljós hafi verið valin til að opna hátíðina vegna þess að hér sé einfaldlega mjög góð mynd á ferðinni og að önnur íslensk mynd (Nói) hafi verið mjög sigursæl á hátíðinni í fyrra.
Kvikmyndahátíðin í Gautaborg er langstærsta hátíðin á Norðurlöndum og er viðurkennd sem hlið norrænna mynda að alþjóðlegum markaði.

