Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Children

FRÉTTIR

GRIKKIR VERÐLAUNA DUGGHOLUFÓLKIÐ

kalliEllenSnjohus

12.12.2008

Duggholufólkið, kvikmynd Ara Kristinssonar, sópaði að sér verðlaunum á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni á Ólympíu í Grikklandi sem er sérstaklega ætluð börnum og unglingum en myndin vann þar til þrennra verðlauna. Bergþór Þorvaldsson var valinn besti leikarinn og Ari Kristinsson besti leikstjórinn af alþjóðlegu dómnefndinni og Duggholufólkið var valin besta myndin af ungmennadómsnefndinni.

Þetta er í 11. skipti sem Ólympíuhátíðin er haldin en meðal styrktaraðila hátíðarinnar eru gríska menntamálaráðuneytið.

 www.olympiafestival.gr.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar