Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

thicker_than_water

FRÉTTIR

Tómas Lemarquis er „Shooting Star“ 2004

Tómas Lemarquis 2003

12.1.2004

Tómas Lemarquis hefur verið valinn í "Shooting Star" hópinn 2004, en árlega leggur European Film Promotion fram lista yfir unga og efnilega leikara sem vakið hafa sérstaka athygli og kynnir þá sérstaklega á kvikmyndahátíðum víða um heim. Hvert ár er hópurinn kynntur með pompi og pragt á Berlínarhátíðinni sem hefst í byrjun febrúar. Tómas hefur vakið mikla ahygli fyrir frammistöðu sína í Nóa albínóa og hlaut m.a. Edduverðlaunin á síðasta ári, auk þess að vera tilnefndur til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna.

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar