Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

Einn komma núll valin í aðalkeppni á Sundance

14.1.2004

1.0 crewOne Point O (1.0), eða Einn komma núll eftir Martein Þórsson og Jeff Renfroe hefur verið valin í hóp 24 mynda sem keppa um aðalverðlaun Sundance kvikmyndahátíðarinnar, sem hefst þann 15. janúar næstkomandi. Kvikmyndasjóður veitti 10 milljón króna framlag til myndarinnar á sínum tíma og er Íslenska kvikmyndasamsteypan meðframleiðandi myndarinnar. Aðalframleiðandi er Chris Sievernich hjá Armada Pictures í Los Angeles, en hann hefur m.a. framleitt nokkrar af myndum Wim Wenders (t.d. Paris, Texas og Tokyo-Ga) auk mynda á borð við The Wedding Planner, The Quiet American og Nurse Betty. Með helstu hlutverk fara Jeremy Sisto (Six Feet Under), Deborah Kara Unger (The Game, Crash), Udo Kier (Dogville, Dancer in the Dark) og Lance Henriksen (Millenium, Alien 3, Terminator). Þá er Eggert Ketilsson leikmyndahönnuður myndarinnar og Chris Soos tökumaður, en hann myndaði m.a. tvo Sigurrósarmyndbönd (Viðrar vel til loftárása og Ónefnt nr. 1, sem nýlega vann til MTV verðlauna).

Í leiðarhnoðu Sundance-hátíðarinnar segir m.a. um myndina:

“Kafka-ísk martröð sem gerist í nálægri framtíð. “Einn komma núll” er sú sjaldgæfa tegund myndar sem sameinar afgerandi myndræna sýn og greindarlega, örvandi frásögn.

Forritarinn Simon (Jeremy Sisto) finnur einn morguninn brúnan böggul í íbúð sinni. Hann opnar pakkann sem reynist tómur. Fleiri pakkar birtast á næstu dögum þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Simons til að einangra íbúð sína. Undir vökulu auga öryggismyndavéla byggingarinnar þar sem hann býr, fyllist Simon smám saman vænisýki og grunsemdum gagnvart nágrönnum sínum. Þegar svo einn þeirra finnst látinn, nær örvæntingin tökum á Simoni. Ofskynjanir hellast yfir hann um leið og hann reynir að átta sig á þeim dularfullu öflum sem náð hafa stjórn á lífi hans.

Með því að blanda saman hinu hversdagslega og hinu furðulega, félagslegu raunsæi og persónulegri skynjun, nær “Einn komma núll” að skapa súrrealískt andrúmsloft sem flytur áhorfandann beint inn í hugarheim hinnar viðkunnanlegu en ráðvilltu aðalpersónu. Leikstjórarnir, Jeff Renfroe og Marteinn Þórsson, undirstrika martraðarkennda stemmninguna með notkun sérlega mettaðra rauðra og grænna litabrigða og tekst að draga fram afar meitlaða túlkun hjá fjölskrúðugum leikarahópnum. “Einn komma núll” er hárbeitt ádeila á völd stórfyrirtækja sem speglar einkennilega kunnuglegan heim þar sem siðferðileg gildi og frjáls vilji lúta lægri haldi gagnvart helsi neyslunnar.”

Marteinn Þórsson hóf feril sinn hjá Sjónvarpinu á níunda áratugnum. Undir lok hans hélt Marteinn til náms í kvikmyndagerð við Ryerson College í Toronto í Kanada. Að námi loknu hóf hann störf hjá Sjónvarpinu sem dagskrárgerðarmaður og vann þar í nokkur ár. 1997 hélt hann aftur til Kanada og starfaði við gerð auglýsinga og tónlistarmyndbanda. “Einn komma núll” er fyrsta mynd hans í fullri lengd. Samstarfsfélagar hans, Jeff Renfroe meðleikstjóri, Chris Soos tökumaður og Daniel Sadler klippari voru allir samskóla við Ryerson College.

Sjáið fleiri ljósmyndir úr myndinni hér.

Stiklu myndarinnar gefur að líta hér (28mb).

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar