FRÉTTIR
VEFSAMFÉLAG FYRIR UNGA KVIKMYNDAGERÐAMENN LEITAR EFTIR AÐALRITSJÓRA
Langar þig að hjálpa ungum kvikmyndagerðarmönnum á Norðurlöndunum í að vaxa og dafna sem kvikmyndagerðarmenn?
dvoted er vefsamfélag fyrir unga kvikmyndagerðarmenn. Á dvoted.net hittast ungir kvikmyndagerðarmenn, hlaða inn stuttmyndunum sínum og fá ráðleggingar frá þekktum kvikmyndagerðarmönnum á Norðurlöndunum. Okkar markmið er að liðsinna næstu kynslóð kvikmyndagerðarmanna að ná nýjum hæðum.
Nú leitum við eftir skapandi aðalritstjóra til stjórna innihaldi á vefsíðunni og leiða samskipti við notendur.
Þitt hlutverk sem aðalritstjóri væri...
... að sjá um að samhæfa og drífa áfram ritstjórnina, sem auk þín saman stendur af 5 meðritstjórum í hlutastarfi, frá öllum Norðurlöndunum.
... að bera ábyrgð á öllu birtu efni á vefsíðunni ásamt því að bera óbeint ábyrgð á efni sem notendur síðunnar búa til á spjallborðum, athugasemdum við stuttmyndir o.fl.
... að sjá um að skipuleggja og koma í framkvæmd daglegum störfum ritstjórnarinnar ásamt því að hafa yfirsýn yfir markmiðum vefsíðunnar með því að meta og þróa innihald, gildi og framtíðarsýn dvoted.
... að spila mikilvægt hlutverk í þróun á glænýrri útgáfu af dvoted sem mun líta dagsins ljós í lok 2009.
Við leitum eftir umsækjanda sem...
... hefur a.m.k. 2 ára reynslu af skapandi skrifum og samskiptum á netinu.
... hefur mikla reynslu af CMS og getur unnið með PhotoShop.
... hefur góða tilfinningu og skarpa sýn á hvernig skuli búa til og kynna efni á netinu.
... hefur reynslu af stjórnun og samhæfingu verkefna (en við gerum það þó ekki að skilyrði).
... hefur áhuga á kvikmyndagerð.
Aðrar upplýsingar
Um er að ræða fullt starf með 6 mánaða reynslutíma. Starfsumhverfið nær til allra Norðurlandanna og því er töluverð fjarlægð milli flestra starfstöðva og samskipta, sem gerir starfið sveigjanlegt en í senn krefjandi.
dvoted hefur skrifstofur í Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi, Íslandi og Noregi.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um sem fyrst. Vinsamlegast láttu fylgja með starfsferil þinn ásamt stuttu persónulegu bréfi. Umsóknarfrestur er til 1. mars en við áskiljum þó okkur rétt til að ráða ritstjóra fyrir þann tíma.
Sendu inn umsóknina þína á jobs@dvoted.net
Umsækjendur geta óskað eftir frekari upplýsingum með því að senda tölvupóst á verkefnastjóra dvoted, Pontus Hummelmann, pontus@dvoted.net

