FRÉTTIR
FJÖLBREYTTAR ÍSLENSKAR KVIKMYNDIR Í GAUTABORG
Sveitabrúðkaup er frumraun Valdísar sem leikstjóri, en hún hefur áður getið sér gott orð sem klippari. Hún vann meðal annars til BAFTA verðlauna árið 2004 fyrir klippingu sína á kvikmyndinni The Eternal Sunshine of the Spotless Mind.
Fleiri íslenskar myndir taka þátt í hátíðinni í Gautaborg í ár. Kjötborg, heimildarmynd eftir þær Helgu Rakel Rafnsdóttur og Huldu Rós Guðnadóttur, tekur þátt í keppni í flokki sem nefnist Norðurljós, en auk hennar taka þátt í hátíðinni stuttmyndirnar Bræðrabylta eftir Grím Hákonarson og Smáfuglar eftir Rúnar Rúnarsson.

