FRÉTTIR
Fréttatilkynning Kvikmyndahátíðin í Gautaborg 2004
Kaldaljós, leikstjóri: Hilmar Oddsson/Ísland
Hip Hip Hora!, leikstjóri: Teresa Fabik/Svíþjóð
Fyra nyanser av brunt, leikstjóri: Thomas Alfredson/Svíþjóð
Tintin et moi, leikstjóri: Anders Østergaard/Danmörk
Med kameran som tröst – del 2, leikstjóri: Carl Johan De Geer/Svíþjóð
Tvilling, leikstjóri: Hans Fabian Wullenweber/Danmörk
Gunnar Goes Comfortable, leikstjóri: Gunnar Hall Jensen/Noregur
Young Gods, leikstjóri: JP Siili/Finnland
Verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn laugardaginn 31. janúar í en dómnefndinni eru Norðurlandabúar sem tengjast kvikmyndum á einn eða annan hátt. Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur er íslenskur fulltrúi dómnefndarinnar en auk hennar eru Monika Tunback Hanson, Anders Refn, Nina Grunfeld, Johanna Vuoksenimaa og Suzanne Glansborg í dómnefndinni.
Fimm íslenskar myndir verða sýndar á hátíðinni að þessu sinni, þ.e. Kaldaljós eins og kemur fram hér að ofan en hinar eru hluti af dagskrá er nefnist Nordic Light. Þær eru Salt eftir Bradley Rust Gray, Burst eftir Reyni Lyngdal, Karamellumyndin eftir Gunnar B. Guðmundsson og heimildamyndin Hestasaga eftir Þorfinn Guðnason en myndin er frumsýnd á hátíðinni.
Í tengslum við hátíðina er haldin markaðshátíð fyrir norrænar myndir sem nefnist "Nordic Event" og er dagana
29. janúar - 2. febrúar. Markmið markaðshátíðarinnar er að koma norrænum kvikmyndum á framfæri en hátíðin býður fjölda kaupenda og fulltrúum frá mikilvægum kvikmyndahátíðum til að kynna fyrir þeim nýjar norrænar myndir.
Þrjár íslenskar myndir voru valdar til að taka þátt í markaðshátíðinni en þær eru Kaldaljós, Salt og teiknimyndin Anna og skapsveiflurnar eftir Gunnar Karlsson en hún er í dagskrá er nefnist "Works in Progress". Myndin er gerð eftir handriti Sjón og við gerð myndarinnar koma þekktir listamenn við sögu, þar á meðal, Björk, Terry Jones, Damon Albarn, Julian Nott og Brodsky kvartettinn en áætlað er að myndin verði tilbúin í desember.

