Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

BÍÓDAGAR Á NORDATLANTENS BRYGGE

Dansinn

30.1.2009

Dagana 5. til 26. febrúar fara fram í sjötta sinn bíódagar í menningarmiðstöðinni Nordatlantens Brygge í Kaupmannahöfn. Þar verða sýndar myndir frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum. Það er því viðeigandi að opnunarmynd bíódaganna að þessu sinni er Dansinn eftir Ágúst Guðmundsson, frá árinu 1998, en hún er einmitt byggð á sögu eftir færeyska skáldið William Heinesen.

Fimmtudaginn 12. febrúar verður leikstjórinn Rúnar Rúnarsson viðstaddur sýningu á stuttmyndum sínum Síðasti bærinn og Smáfuglar, en að auki verða þá sýndar þrjár stuttmyndir eftir færeyska leikstjórann Ingunni Olsen. Viku síðar , fimmtudaginn 19. febrúar, verður Djöflaeyjan, kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar frá árinu 1996, sýnd, en þá flytur Birgir Thor Møller, skipuleggjandi bíódaganna, inngangsorð.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar