Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Children

FRÉTTIR

Kvikmyndahátíðin í Berlín 2004

3.2.2004

Kvikmyndahátíðin í Berlín verður haldin dagana 5. - 15. febrúar. Framlag Íslands á hátíðinni er Kvikmyndin Kaldaljós í leikstjórn Hilmars Oddssonar sem hefur verið valin til sýninga á hátíðinni. Framleiðendur, aðalleikarar og leikstjóri verða viðstödd frumsýningu myndarinnar þann 7. febrúar nk. í Berlín. Auk þess verður Kaldaljós og Opinberun Hannesar í leikstjórn Hrafns Gunnlaugssonar sýndar á markaðssýningum í tengslum við hátíðina.

Leikarinn Tómas Lemarquis hefur verið valinn í hóp ungra efnilegra evrópska leikara sem "Shooting Star 2004". Er slík tilnefning mikill heiður fyrir unga leikara og gerir þeim kleift að koma sér á framfæri við framleiðendur og kvikmyndagerðarmenn í Evrópu.

Þeir Ólafur Jóhannesson, Óskar Þór Axelsson og Ragnar Santos hafa verið valdir til að taka þátt í "Talent Campus 2004" í Berlín.

Fjögur íslensk verkefni hafa auk þess verið valin til að taka þátt í co-production markaðnum í Berlín. Þetta eru verkefnin: White lies í leikstjórn Marteins Þórssonar og Jeff Renfroe, framleiðandi Pegasus Pictures;   Ordinary life í leikstjórn Árna Óla Ásgeirssonar, framleiðandi Pegasus Pictures; The Good Heart í leikstjórn Dags Kára Péturssonar, framleiðandi ZikZak Filmworks og Three Times a Gentlemen, leikstjórn og handritsgerð er í höndum Óskars Þórs Axelssonar.

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar