FRÉTTIR
Anthony Dod Mantle með námskeið í stafrænni tækni
Anthony Dod Mantle, tökumaður mynda á borð við Festen, Julien Donkey-Boy, 28 Days Later og Dogville heldur málstofu á vegum Kvikmyndamiðstöðvar Íslands helgina 27.-29. febrúar næstkomandi. Viðfangsefni málstofunnar verður notkun stafrænnar tækni við kvikmyndagerð. Sýndar verða ofangreindar myndir hans á málstofunni, tvær á föstudeginum og tvær á sunnudeginum með umræðum á eftir á sunnudeginum. Laugardagurinn fer í fyrirlestur Mantle og almennar umræður þar sem tækifæri gefst til að spyrja hann spjörunum úr. Þátttökugjald er 5000 kr. og áhugasömum er bent á að skrá sig hjá Valdísi Óskarsdóttur.

