FRÉTTIR
NAGLINN HLAUT VIÐURKENNINGU Í CLERMONT
Stuttmyndin Naglinn eftir Benedikt Erlingsson hlaut sérstaka viðurkenningu dómnefndar í flokki alþjóðlegra stuttmynda á stuttmyndahátíðinni í Clermont-Ferrand í Frakklandi sem fór fram dagana 30. janúar til 7. febrúar. Myndin var jafnframt valin til þáttöku í átta mynda úrval hátíðarinnar sem sýnt verður í París.
Auk þessa fékk Naglinn umfjöllun í frönskum blöðum á meðan á hátíðinni stóð og var einnig fjallað um myndina í sjónvarpsþættinum Tout Arrive í franska ríkissjónvarpinu.

