Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

Fréttatilkynning frá Kvikmyndamiðstöð Íslands vegna Berlínar 2004 og Clermont Ferrand

10.2.2004

Íslendingar eru áberandi á 54. kvikmyndahátíðinni sem nú stendur yfir í Berlín. Kvikmyndin Kaldaljós var frumsýnd í sérstakri hátíðardagskrá í gærkvöldi, Panorama Special, að viðstöddum leikstjóranum Hilmari Oddsyni og aðalleikurunum Ingvari E. Sigurðsyni og börnum hans Ásláki og Snæfríði sem í fyrsta sinn leika á móti föður sínum í kvikmynd. Kaldaljós hlaut mjög góðar viðtökur áhorfenda sem beindu í lok sýningarinnar mörgum spurningum til leikstjórans og leikaranna. Önnur sýning myndarinnar fór fram s.l. sunnudag, og aftur fyrir troðfullum sal áhorfenda.
 
Myndin Jargo undir leikstjórn Maríu Sólrúnar Sigurðardóttur var frumsýnd í dag á sérstakri unglingamyndahátíð, 14plus.  Er þetta fyrsta mynd Maríu Sólrúnar í fullri lengd, en María hefur búið í Berlín um árabil. Var henni og aðstandendum myndarinnar ákaft fagnað í lokin. Jargo segir frá ungum innflytjanda í Berlín og fyrstu kynnum hans af unglingum í nýrri borg.  Af öðrum Íslendingum sem koma að Jargo má nefna Birgittu Guðjónsdóttur kvikmyndatökumann og bræðurna Halldór og Arnar Jósepssyni sem ásamt móður sinni Sólveigu Arnarsdóttur fara með hlutverki í myndinni.
 
Sólveig Arnarsdóttir er einnig í aðalhlutverki í þýsku myndinni Zwischen nacht und tag, sem verður frumsýnd á þriðjudagskvöld.  Myndin er í dagskrá Berlínarhátíðarinnar sem nefnist German Film Perspective.
 
Meðal annarra þýskra kvikmynda sem kynntar eru í dagskránni er myndin Blueprint en þar leikur Hilmir Snær Guðnason eitt aðalhlutverkið á móti leikkonunni Franka Potente (Run Lola Run, Bourne Identity).
 
Einsog fram hefur komið áður var framleiðendunum Snorra Þórissyni frá Pegasus, og Þóri Snær Sigurjónssyni og Skúla Malmquist frá ZikZak boðið að kynna verkefni sín á sérstökum markaði fyrir meðframleiðendur.
 
Talent Campus fengu aðgang Óskar Þór Axelsson og Ragnar Santos og taka þeir nú þátt í 5 daga dagskrá þar sem þeir njóta m.a. handleiðslu leikstjóranna Alan Parker og Anthony Minghella og klipparans Walter Murch.
 
Kvikmyndamiðstöð Íslands, í samvinnu við hin Norðurlöndin, tekur þátt í markaði undir merkjum Scandinavian Films.  Hefur fjöldi áhugasamra leitað upplýsinga um íslenskar kvikmyndir og um Ísland sem tökustað fyrir erlendar kvikmyndir og sjónvarpsþætti.  Ásamt starfsmönnum Kvikmyndamiðstöðvar Íslands er hér staddur Einar Tómasson frá Fjárfestingastofu til að kynna lög um endurgreiðslu til handa framleiðendum vegna leikinna kvikmynda-og sjónvarpsmynda sem teknar eru á Íslandi.
 
Nú í þessu voru að berast þær frétttir að stuttmynd Árna Óla Ásgeirssonar Anna´s dag hefði hlotið gagnrýnendaverðlaun Stuttmyndahátíðarinnar í Clermont-Ferrand.

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar