FRÉTTIR
CANNES 2004: Résidence du Festival - umsóknarfrestur til 1. apríl
Kvikmyndahátíðin í Cannes styður upprennandi kvikmyndagerðarmenn við undirbúning verka sinna með húsnæði og uppihaldi í París undir heitinu "Résidence du Festival". Umsóknarfrestur er til 1. apríl næstkomandi.
Dvalartímabil er fjórir og hálfur mánuður og hægt er að velja um tvö tímabil; annarsvegar 1. október til 12. febrúar og hinsvegar frá 28. febrúar til 10. júlí. Umsóknarfrestur vegna fyrrnefnda tímabilsins er til 1.apríl næstkomandi.
Umsækjendur skulu hafa gert a.m.k. eina stuttmynd eða bíómynd og hafa lokið að mestu við handrit næsta verkefnis. Á dvalartímanum munu hinir útvöldu hafa tækifæri til að hitta að máli fjölda aðila úr kvikmyndageiranum, s.s. leikstjóra, framleiðendur, handritshöfunda, dreifingaaðila o.fl. sem stutt geta við frekari þróun verkefnisins. Auk þess er lögð áhersla á umræður og skoðanaskipti innan hópsins.
Allar frekari upplýsingar má finna undir eftirfarandi tenglum:
Résidence du Festival - kynning

