Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

NÁMSKEIÐ Í FÉLAGSLEGRI HEIMILDARGERÐ

esodoc

20.2.2009

Námskeið á vegum ESoDoc – European Social Documentary fara fram í þremur Evrópulöndum í sumar og haust. Námskeiðin miða að því að leiða saman ólíka aðila sem koma að framleiðslu heimildarmynda um félagsleg málefni, mannréttindi og umhverfismál og stuðla þannig að nýjum tækifærum í evrópskri heimildamyndagerð.

Fyrsta námskeiðið á árinu fer fram í Bressanone á Ítalíu dagana 9.-15. maí, annað námskeiðið fer fram í Berlín í Þýskalandi dagana 11.-17. júlí og þriðja námskeiðið fer fram í Isola í Slóveníu dagana 14.-20. september. Umsóknarfrestur rennur út 3. mars næstkomandi, en nánari upplýsingar um námskeiðin og umsóknir má nálgast á vefslóðinni www.esodoc.eu



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar