Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

The Sea

FRÉTTIR

ÍSLENSKAR MYNDIR VERÐLAUNAÐAR Í BELGÍU

BackSoon_Still2

27.2.2009

Tvær íslenskar myndir unnu til verðlauna á kvikmyndahátíðinni Le Festival International du Film d‘Amour de Mons sem fór fram í bænum Mons í Belgíu dagana 13.-20. febrúar. Kvikmyndin Skrapp út eftir Sólveigu Anspach vann þar til verðlauna sem besta evrópska myndin og hin sigursæla stuttmynd Rúnars Rúnarssonar, Smáfuglar, hlaut verðlaun sem besta alþjóðlega stuttmyndin.

Kvikmyndahátíðin í Mons fagnaði aldarfjórðungsafmæli sínu nú í ár, en hún nýtur stöðugt meiri vinsælda og virðingar hjá kvikmyndaunnendum um heim allan.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar