FRÉTTIR
Þrír Íslendingar valdir á North By Northwest
North By Northwest handritaþróunarstofan hefur tilkynnt um þátttakendur þessa árs og þar á meðal er að finna þrjá Íslendinga, Ara Kristinsson, Benedikt Erlingson og Jónu Finnsdóttur. Ari og Benedikt eru þarna með verkefni sín "Utan þjónustusvæðis" og "Sönn saga" en Jóna mun hljóta þjálfun í handritaráðgjöf (script editor). Vinnustofan nær yfir átta mánaða tímabil en á þeim tíma kemur hópurinn saman þrisvar, viku í senn, á Borgundarhólmi í Danmörku. Þátttakendum gefst síðan kostur á að hitta framleiðendur víðsvegar að á Berlínarhátíðinni 2005.

