Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

STYRKIR ÚR KVIKMYNDASJÓÐI 2008

1.2.2009

Alls hlutu rúmlega hundrað verkefni styrk eða vilyrði um styrk úr Kvikmyndasjóði árið 2008. Voru styrkirnir ýmist til handritsgerðar, þróunar eða framleiðslu hinna ýmsu verkefna fyrir bæði sjónvarp og kvikmyndahús.

Á meðal þeirra verkefna sem hlutu framleiðslustyrki á síðasta ári voru kvikmyndirnar Brim eftir Árna Ólaf Ágústsson, Good Heart eftir Dag Kára, Run for Her Life eftir Baltasar Kormák, Reykjavík Whale Watching Massacre eftir Júlíus Kemp og Hátíð í bæ eftir Hilmar Oddsson. Einnig voru á meðal styrkþega leiknu sjónvarpsverkefnin Rannsóknardeildin eftir Óskar Jónasson, Dýrmundur í Húsdýragarðinum eftir Eggert Gunnarsson, Hamarinn eftir Reyni Lyngdal og Réttur eftir Sævar Guðmundsson.

Heildaryfirlit yfir styrki og vilyrði Kvikmyndasjóðs árið 2008 má nálgast hér



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar