FRÉTTIR
Nordisk Panorama haldin í Reykjavík 24. - 28. september
15. norræna stutt- og heimildarmyndahátíðin, Nordisk Panorama, verður haldin í Reykjavík dagana 24. - 28. september næstkomandi. Á hátíðinni eru að jafnaði sýndar milli 50-60 myndir frá öllum Norðurlöndunum, það besta sem þessi lönd hafa uppá að bjóða á þessu sviði. Samhliða hátíðinni er rekinn markaður fyrir stutt- og heimildarmyndir auk fjármögnunarmessunnar Nordisk Forum þar sem framleiðendur og kaupendur heimildarmynda bera saman bækur. Eva María Jónsdóttir sjónvarpskona er stjórnandi hátíðarinnar í ár og hennar hægri hönd er Lárus Halldórsson kvikmyndagerðarmaður.
FilmKontakt Nord, samstarfsvettvangur Norðurlandaþjóðanna á sviði stutt- og heimildarmynda rekur þessa hátíð sem haldin er til skiptis í fjórum borgum auk Reykjavíkur; Árósum, Malmö, Oulu og Björgvin. Reykjavíkurborg og Kvikmyndamiðstöð Íslands styðja jafnframt við framtakið að þessu sinni
.

