FRÉTTIR
SMÁFUGLAR VINNA TIL VERÐLAUNA Á GRUNDARFIRÐI
Sigurganga stuttmyndarinnar Smáfuglar eftir leikstjórann Rúnar Rúnarsson virðist engan endi ætla að taka. Myndin vann fyrstu verðlaun í flokki stuttmynda á kvikmyndahátíðinni Northern Wave sem fór fram á Grundarfirði um nýliðna helgi. Í öðru sæti hafnaði pólska myndin The Wedding eftir Maciek Salamon og fyrstu verðlaun í flokki tónlistarmyndbanda fékk Milos Tomic frá Tékklandi fyrir myndband sitt við lagið Hair.
Smáfuglar er ein sigursælasta stuttmynd heims og hefur fram að þessu unnið til 27 verðlauna á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum.

