FRÉTTIR
Burst boðið til Oberhausen og Toronto
Stuttmyndinni Burst eftir Reyni Lyngdal og Katrínu Hall hefur verið boðið að taka þátt í hinni virtu stuttmyndahátíð í Oberhausen í Þýskalandi sem fram fer dagana 29. apríl til 4. maí. Þá hefur myndinni einnig verið boðið til Toronto þar sem stuttmyndahátíðin Worldwide Short Film Festival fer fram dagana 11.-16. maí, en þar mun myndin taka þátt í keppni.

