FRÉTTIR
KJÖTBORG FÆR MENNINGARVERÐLAUN DV
Heimildarmyndin Kjötborg eftir þær Huldu Rós Guðnadóttur og Helgu Rakel Rafnsdóttur hlaut Menningarverðlaun DV árið 2008 í flokki kvikmynda. Í sama flokki voru tilnefndar Kvikmyndahátíðin Skjaldborg, sjónvarpsþáttaröðin Dagvaktin eftir Ragnar Bragason, stuttmyndin Smáfuglar eftir Rúnar Rúnarsson og kvikmyndin Brúðguminn eftir Baltasar Kormák. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Iðnó í gær.

