Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

Ísland í kastljósinu á Minimalen

23.3.2004

Minimalen-stuttmyndahátíðin var haldin í Prinsens kinosenter í Þrándheimi (Niðarósi) og þarna standa í anddyrinu, frá vinstri: Per Fikse, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, Árni Ólafur Ágeirsson leikstjóri og Ólafur H. Torfason kvikmyndagagnrýnandi.

Minimalen-stuttmyndahátíðin var haldin í 16. skipti í Þrándheimi (Niðarósi) í Noregi 11.-15. mars. Að þessu sinni var lögð sérstök áhersla á að kynna íslenska kvikmyndagerð. Fyrir tilstilli Kvikmyndamiðstöðvar Íslands mættu til hátíðarinnar Árni Ólafur Ágeirsson leikstjóri sem kynnti stuttmynd sína Annas Dag, en hún vann nýlega til verðlauna á alþjóðlegu stuttmyndahátíðinni í Clermont-Ferrand í Frakklandi, og Ólafur H. Torfason gagnrýnandi sem sagði frá íslenskri kvikmyndagerð og íslensku dagskránni á Minimalen.

Sýndar voru í tveimur sérstökum dagskrám 12 íslenskar stuttmyndir. Auk Annas Dag eftir Árna Óla Ásgeirsson voru það Maður og verksmiðja (1967) eftir Þorgeir Þorgeirsson, Ævintýri á okkar tímum (1992) eftir Ingu Lísu Middleton, Á blindflugi (1998) og Karamellumyndin (2003) eftir Gunnar Björn Guðmundsson, Old Spice (1998) og Lost Weekend (1999) eftir Dag Kára Pétursson, Slurpinn og Co. (1998) eftir Katrínu Ólafsdóttur, BSÍ (2001) eftir Þorgeir Guðmundsson, While the Cat's Away (2003) eftir Helenu Jónsdóttur og Unni Ösp Stefánsdóttur, ásamt Kissing (2003) og Burst (2003) eftir Reyni Lyngdal.

Aðalverðlaun Minimalen-hátíðarinnar sem besta norska stuttmyndin 2004 hlaut Pigen i Skabet eftir Hanne Larsen og tækniverðlaun fékk Fredrik Myklebust fyrir Future Wars. Í alþjóðlegum hluta keppninnar vann myndin Harvey Krumpet eftir Adam Elliot, en hún fékk m.a. Óskarsverðlaunin sem besta stuttmynd á þessu ári. Bestu einnar-mínútu-myndirnar voru valdar Fisher Price Detective eftir Stine M. Holme, Liten... eftir Benedicte Maria Orvung, Elskede, Ørn eftir Remi Aleksander Hoven og Blind kjærlighet eftir Kristian Bålsrød.


 

 

 

efnisyfirlit síðunnar