Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

ÚTHLUTANIR ÚR KVIKMYNDASJÓÐI FRÁ ÁRAMÓTUM

IFC_logo

12.3.2009

Ein leikin kvikmynd í fullri lengd, Mamma Gógó í leikstjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar, hlaut styrk úr Kvikmyndasjóði á fyrstu tveimur mánuðum 2009. Upptökur á myndinni hófust nú í byrjun mars.

Þrjár leiknar kvikmyndir hlutu vilyrði um framleiðslustyrk; Grafarþögn í leikstjórn Baltasars Kormáks, en hún byggir á samnefndri metsölubók Arnaldar Indriðasonar, Mannerheim í leikstjórn Renny Harlin, en þar er um að ræða samframleiðslu Kvikmyndafélags Íslands með Finnum, og Bjarnfreðarson í leikstjórn Ragnars Bragasonar, en í henni færa persónur sjónvarpsþáttanna Næturvaktin og Dagvaktin sig á hvíta tjaldið.

Fjórar heimildarmyndir fengu á sama tímabili vilyrði um framleiðslustyrk; Laxdæla Bjarna Hermannssonar í leikstjórn Ólafs Jóhannessonar, Íslensku Björgunarsveitirnar í leikstjórn Magnúsar Viðars Sigurðarsonar, Point of No Return í leikstjórn Helga Felixsonar og Krían í leikstjórn Páls Steingrímssonar.

Þrjár stuttmyndir fengu framleiðslustyrki; Pleisið í leikstjórn Jakobs Halldórssonar, Átta rása í leikstjórn Ragnars Agnarssonar og Lítill Geimfari í leikstjórn Ara Alexanders. Að auki hlaut stuttmyndin Minni máttar í leikstjórn Katrínar Ólafsdóttur vilyrði um framleiðslustyrk.

Upplýsingar um aðra styrki og fjárhæðir má finna hér.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar