FRÉTTIR
KEPPNI OG NÁMSKEIÐ FYRIR UNGT FÓLK
NUFF hátíðin, sem fer fram í Tromsö í Noregi dagana 6.-15. júní, kallar eftir stuttmyndum frá ungum kvikmyndagerðarmönnum á aldrinum 15-25 ára. Myndirnar þurfa að vera innan við 20 mínútur að lengd til þess að geta tekið þátt í hátíðinni, en að öðru leyti gilda engar takmarkanir hvað efnistök myndanna varðar. Umsóknarfrestur er til 1. apríl næstkomandi og umsóknareyðublað má fylla út á vefslóðinni www.nuff.no/competition/enter/filmform2008_competition.php
Einnig stendur fólki á aldrinum 15-25 ára til boða að sækja um þátttöku á stuttmyndagerðarnámskeiði sem fer fram í Tromsö í tengslum við NUFF-hátíðina. Á námskeiðinu munu þátttakendur læra að vinna stuttmynd, frá hugmynd til fullkláraðs verks, á fimm dögum. Nánari upplýsingar má finna á vefslóðinni www.nuff.no

