Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

thicker_than_water

FRÉTTIR

ÍTÖLSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REGNBOGANUM 20. til 22. mars 2009

paolosorrini

19.3.2009

Núna um helgina verður lítil ítölsk kvikmyndahátíð í Regnboganum

þar sem eingöngu verða sýndar myndir Paolo Sorrento,

Honum er ofaukið - L’uomo in più
 frá 2001

Afleiðingar ástarinnar - Le conseguenze dell'amore frá 2004

Fjölskylduvinurinn - L´Amico di famiglia frá 2006

sem fékk aðalverðlaun dómnefndar í Cannes það árið.

Þrjár ítalskar kvikmyndir eftir Paolo Sorrentino

Löng hefð er fyrir gerð kvikmynda á

Ítalíu. Þegar við nefnum leikstjóra á

borð við De Sica, Rosselini, Fellini,

Visconti, Antonioni, Pasolini, Olmi og

Scola hlýtur ungum kvikmyndagerðarmönnum

þar í landi að hrjósa

hugur. Þrátt fyrir það hafa ungir ítalskir

leikstjórar tekið meiri áhættu og þróað

nýjan stíl. Þeir hafa skapað fleiri

persónugerðir og velt við fleiri flötum á

ítalskri menningu og sögu í nýjustu

myndum sínum. Kvikmyndirnar þrjár

sem við sjáum í þessari litlu seríu eru

allar eftir Paolo Sorrentino, sem er einn

af bestu kvikmyndagerðarmönnum Ítalíu

af yngstu kynslóðinni í dag. Hann er

borinn og barnfæddur í Napolí þann 31.

mars árið 1970. Áður en hann tók til við

leikstjórn var hann þekktur handritshöfundur

í sjónvarpi. Honum er ofaukið

er fyrsta höfundarverk hans og önnur

kvikmyndin í fullri lengd er hann

leikstýrir. Í næstu mynd sinni

Afleiðingar ástarinnar heldur hann

áfram einstöku samstarfi sínu við

leikarann Toni Servillo, sem oftast

kemur við sögu í myndum hans. Þessi

mynd var sýnd á kvikmyndahátíðinni í

Cannes og vakti verðskuldaða athygli

gagnrýnenda og kvikmyndafólks og

sópaði til sín verðlaunum á ýmsum

kvikmyndahátíðum. Þriðja myndin

Fjölskylduvinurinn vakti ekki minni

athygli í Cannes 2006, enda hlaut hún

aðalverðlaun dómnefndar það árið. Þar

heldur Sorrentino áfram að kanna með

hnitmiðuðu myndmáli sínu dýpri og

dekkri afkima sálarinnar. Kvikmyndastíll

Paolo Sorrentino er persónulegur og

um leið nútímalegur og alþjóðlegur.

Vinnubrögð hans eru öguð og

nýtískuleg. Sköpunargleði hans og

frumleiki ásamt nýstárlegri notkun

tónlistar skipa honum á bekk meðal

fremstu kvikmyndaleikstjóra Evrópu í

dag. Nýjasta mynd hans, il Divo, sem

því miður er ekki á dagskrá á þessari

hátíð og fjallar um þingmanninn Giulio

Andreotti, hefur vakið gífurlega athygli,

en frumsýningar hennar fara nú fram

víða í Evrópu. Sendiráð Ítalíu á Íslandi

á heiðurinn af því að færa okkur

þessar frábæru kvikmyndirmyndir.

Góða skemmtun!

Buon divertimento!

SÝNINGARTÍMAR

Föstudagur 20. mars

17:50 Fjölskylduvinurinn

20:00 Afleiðingar ástarinnar

22:10 Honum er ofaukið

Laugardagur 21. mars

15:30 Honum er ofaukið

17:50 Afleiðingar ástarinnar

20:00 Honum er ofaukið

22:10 Fjölskylduvinurinn

Sunnudagur 22. mars

15:30 Afleiðingar ástarinnar

17:50 Honum er ofaukið

20:00 Fjölskylduvinurinn

22:10 Afleiðingar ástarinnar

HONUM ER OFAUKIÐ

L’uomo in più

ítalía 2001

Leikstjórn: Paolo Sorrentino

Aðalhlutverk: Toni Servillo, Andrea

Renzi, Nello Mascia, Angela Goodwin

Lengd: 100 min.

Þessi áhugaverða kvikmynd Honum er

ofaukið byggir á sögu tveggja ólíkra

manna á Ítalíu á áttunda og níunda

áratugnum. Þeir voru sannkallaðar

stjörnur sem báðir litu full stórt á sig.

Annar þeirra var söngvarinn Franco

Califano. frægur rokkari sem hafði

gefið út fleiri en þrjátíu hljómplötur og

leikið í nokkrum kvikmyndum. Hinn var

knattspyrnustjarnan Agostino Di

Bartolomei sem gekk undir gælunafninu

DiBa. DiBa stytti sér aldur 39 ára gamall

árið 1994. Honum er ofaukið fjallar um

tvo menn með sama nafni, sem eru

fæddir á sitt hvoru árinu. Franco

Califano verður að hinum vinsæla

næturklúbbssöngvara Tony Pisapia en

DiBa verður Antonio Pisapia yngri, sem

er dáð knattspyrnuhetja. Að upplagi

eru þeir ólíkir. Tony er haldin

stórmennskubrjálæði, eigingjarn og

þóttafullur kókaínneytandi meðan nafni

hans er feiminn og hlédrægur, en þó

skapstyggur og einþykkur. Sem

söngvari á Tony sér ekki viðreisnar

von eftir að hann á samræði með

stúlku undir lögaldri. Óheppnin eltir

aftur á móti Antonio, sem slasast í leik,

og verður að segja skilið við glæstan

feril sem knattspyrnumaður. Hann

reynir fyrir sér sem þjálfari, en ungri

eiginkonu hans líst illa á það.

AFLEIÐINGAR ÁSTARINNAR

Le conseguenze dell'amore

Ítalía 2004

Leikstjórn: Paolo Sorrentino

Aðalhlutverk: Toni Servillo, Adriano

Giannini, Olivia Magnani, Angela

Goodwin, Raffaele Pisu

Lengd: 100 mín.

Allir eiga sín leyndarmál, en Titta di

Girolamo á þau fleiri en flestir aðrir.

Það er augljóst. Hvers vegna skyldi

annars maður á miðjum aldri frá SuðurÍtalíu

dvelja í átta ár á hóteli í smábæ

undir fölsku flaggi sem svissneskur

Ítali. Það virðist sem hann hafi ekki haft

nokkuð fyrir stafni í öll þessi ár.

Glæsilega klæddur og síreykjandi hefur

hann eigrað um hótelið, án annarrar

dægradvalar. Eins og að hann hafi

beðið eftir því að eitthvað gerðist. Það

virðist sem Titta sé orðin tilfinningalaus

og vart má orðið greina svipbrigði í

andliti hans. Hann er aleinn og

yfirgefinn. Hann virðist einungis hugsa

um leyndarmálið er býr í sálu hans. En

hvers vegna? Hver eru leyndarmál

Titta?

FJÖLSKYLDUVINURINN

L´Amico di famiglia

Ítalía 2006

Leikstjórn: Paolo Sorrentino

Aðalhlutverk: Fabizio Bentivoglio,

Giacomo Rizzo, Gigi Angelillo, Laura

Chiatti

Lengd: 110 mín.

Hinn sjötugi skraddari og okurkarl

Geremia de Geremei er forljótur og

sóðalegur, auðugur og nískur,

kaldhæðinn og háðskur. Tengsl hans

við lífið og tilveruna einkennast af

þráhyggju og dauðyflislegu stærilæti

bæði gagnvart móður sinni, konum og

peningum. Í reynd gagnvart lífinu öllu.

Geremia heldur að hann sé einn á ferð.

Svo er ekki. Allir eru eins og hann. Við

erum öll eins og hann. Þannig lýsir

leikstjórinn Paolo Sorrentino helstu

persónu myndarinnar, sem er sviðsett í

vingjarnlegum smábæ í Pontine fenjasvæðinu

suður af Róm. Þar búa

foreldrar hinnar ungu og ofurfögru

Rósölbu, sem neyðast til að taka lán

hjá Geremia vegna brúðkaups dóttur

sinnar.

Þýðingar eru með enskum undirtitlum



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar