FRÉTTIR
Nói albínói gerir það gott í Ameríku
Hin marglofaða mynd Dags Kára Péturssonar Nói albínói er nú í almennum sýningum í Bandaríkjunum og hefur verið að fá frábæra dóma. Á Rotten Tomatoes vefnum kemur fram að alls hafa 23 gagnrýnendur vestra tjáð sig um myndina og þar af eru 21 ánægður en aðeins tveir ekki. Þá er stiklu myndarinnar að finna á hinum fjölsótta stikluvef Apple.

