Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

The Sea

FRÉTTIR

Mini INPUT ráðstefna um alþjóðlegt sjónvarpsefni í Norræna húsinu 7. maí

16.4.2004

Hin árlega INPUT ráðstefna gefur um 1000 framleiðendum og dagskrárgerðarmönnum, sem starfa á sviði sjónvarps í almannaþágu í yfir 50 löndum, tækifæri til að skoða og ræða um 80 klukkustundir af dagskrárefni. Þann 7. maí næstkomandi standa Sjónvarpið og Kvikmyndamiðstöð Íslands fyrir svokallaðri Mini-INPUT uppákomu í Norræna húsinu með það að markmiði að vekja athygli innlendra framleiðenda, leikstjóra og sjónvarpsfólks á þessari ráðstefnu sem næst fer fram í Barcelona dagana 23.-28. maí. Hægt er að bóka sig á Mini-INPUT hér.

Dagskrárgerðarmönnum gefst hér einstakt tækifæri til að horfa á fjölbreytt dagskrárefni sem að öðru jöfnu er sjaldan aðgangur að. INPUT býður fagfólki uppá vettvang til að horfa yfir bæjarlækinn og eiga kröftuga umræðu um hugmyndir, nálgun, nýsköpun og áhættu í dagskrárgerð. 

INPUT hefur notið mikillar velgengni um 25 ára skeið og má ekki síst þakka það hinum breiða hópi hæfileikafólks sem komið hefur á ráðstefnuna í gegnum tíðina, auk velvilja sjónvarpsstöðva og sjálfstæðra framleiðslufyrirtækja.

Framleiðendur og umsjónarmenn sjónvarpsefnis á Íslandi eru hvattir til að skrá sig til þátttöku á INPUT 2004. Slóðin á vef ráðstefnunnar er www.input2004.org, og frekari upplýsingar um INPUT má fá á slóðinni www.input-tv.org.

Afar fáir Íslendingar hafa tekið þátt í INPUT hingað til, en árið 2000 var heimildarmyndin "Corpus Camera" eftir Hrafnhildi Gunnarsdóttur og Sigurjón Baldur Hafsteinsson sýnd á ráðstefnunni við mikla athygli.

Mini INPUT dagskráin samanstendur af nokkrum sýnishornum af því efni sem sýnt var á INPUT 2003, sem fram fór í Árósum í Danmörku.

Dagskrá Mini-INPUT í Norræna húsinu 7. maí:

Morgunstund: 09.00 – 12.00

Kynning á INPUT
Carl Otto Dethlefsen, formaður Input 2003, kynnir ráðstefnuna.

Spurðu og þér verður svarað

”Vonarlestin”, Kína 2002, Heimildarmynd. Stjórnandi: Ning Ying, 52’;
Í ágúst og september ár hvert yfirgefa þúsundir landbúnaðarverkamanna Sichuan héraðið í Kína og ferðast þúsundir kílómetra með lestum í leit að vinnu í hinum afskekkta vesturhluta landsins. Þessi dásamlega heimildarmynd spyr einfaldra spurninga og gefur okkur einstakt tækifæri til að kynnast lífsviðhorfum fátækra Kínverja.

“5. bekkur – Þau eru að skilja”, Danmörk 2002, úr heimildarþáttaröð. Stjórnandi: Kirsten Axelsen, 25’;
Krakkar úr fimmta bekk lýsa reynslu sinni og segja okkur hvernig það er þegar mamma og pabbi skilja. Einfalt og grípandi sjónvarp (sýndur verður einn þáttur af sex um lífið í fimmta bekk dansks grunnskóla).

Taktu vel eftir í fáeinar mínútur

“Falið” Svíþjóð 2002, hreyfimynd. Stjórnendur: Hanna Heilborn, David Aronowitsch, Mats Johannson, 8’;

“Stórmokstur” Kanada 2002, dansmynd, Stjórnandi: Anne Troake, 4’;
 
“Hljóð litanna” Mexíkó 2002, tónlistarmyndband, Stjórnandi: Daisuke Amezcua Furuya, 8’;
 
“Trimmari” Bretland 2002, leikin heimildarmynd, Stjórnandi: Tariq Ali, 10’;

Persónuleg saga fyrir sjónvarp

“Hermt eftir afa” Danmörk 2001, stjórnandi Pernille Grønkjær, 28´.
Þessi dagskrá er sýnd hér til að undirstrika að persónulegar sögur þurfa ekki að einskorðast við stuttmyndaformið, þær geta einnig hentað vel fyrir sjónvarp. (Sýnt á INPUT 2002 í Rotterdam).

Hádegisverður

Síðdegisstund 13.00 – 15.30

Úr hugmyndum í form: sýnishorn úr þremur þáttum:

"Makaskipti” Bretland 2002, heimildarþáttaröð. Stjórnandi: Sidra Khan
“Allt í plati” Bretland 2002, heimildarþáttaröð. Stjórnandi: Stephen Walker
“5 um 5” Kanada 2002, heimildarþáttaröð. Stjórnandi: Paul Morin
Dagskrárstjórar sjónvarpsstöðva um allan heim leggja sífellt meiri áherslu á formgerð einstakra þáttaraða (formatted television) og áhorfendur viðrast taka slíku efni fagnandi. Hér eru þrjú dæmi um einfaldar hugmyndir sem búið er að útfæra í fjörlegt sjónvarpsefni. Lengd um 35’; (að öllu jöfnu er dagskrárefni á INPUT sýnt í fullri lengd en undantekning er gerð hér og aðeins gefin dæmi.)

Getur þú ávallt treyst sjónvarpi?

 “Bakhlið tunglsins” Frakkland 2002, heimildarmynd, stjórnandi: William Karel, 52?
Þegar viðtal var tekið við ekkju Stanley Kubrick kom einstök saga uppá yfirborðið. Kubrick og aðrir kvikmyndagerðarmenn frá Hollywood áttu sinn þátt í velgengni geimferðaáætlunar Bandaríkjanna með því að kynna hana sem myndræna skemmtun. Þessi saga kveikti þá hugmynd að reyna að finna út hversu langt menn eru tilbúnir að ganga varðandi áhrifamátt mynda. Svarið gæti legið fyrir í þessari forvitnilegu heimildarmynd sem notfærir sér margskonar aðferðir, eins og "stolið" safnefni, fölsuð skjöl og raunveruleg viðtöl sem tekin hafa verið úr samhengi. Þetta er ekki "venjuleg" heimildarmynd. Markmiðið er að fræða og skemmta áhorfandanum en einnig að hrista uppí honum, gera hann meðvitaðan um að skoða ætíð hutina með gagnrýnum augum.

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar