FRÉTTIR
NÁMSKEIÐ Í MARKAÐSMÁLUM OG DREIFINGU
MD, námskeið í markaðsmálum og dreifingu fyrir fagfólk í kvikmyndaiðnaði, fer fram í bænum Ronda á Spáni dagana 7.-11. júlí næstkomandi. Námskeiðið er styrkt af MEDIA-áætlun Evrópusambandsins og miðar að því að auka hæfni þáttakenda í ýmsum hliðum markaðssetningar- og dreifingarmála og bæta þannig möguleika þeirra á atvinnumarkaði. Tekið er við umsóknum á námskeiðið fram til 1. júní, en nánari upplýsingar um námskeiðið og umsóknarferlið má lesa hér. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir í tölvupósti á mdcourse@mediaschool.org.

