Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

BRÚÐGUMINN VERÐLAUNAÐUR Í BÚDAPEST

Hilmir_Snaer_Gudnason_as_JON_small

8.4.2009

Kvikmyndin Brúðguminn eftir Baltasar Kormák hlaut áhorfendaverðlaun á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Titanic sem fór fram í Búdapest í Ungverjalandi dagana 26. mars til 5. apríl.

Íslenskar myndir hafa verið sigursælar á Titanic-hátíðinni; í fyrra fékk heimildarmyndin Sigur Rós: Heima áhorfendaverðlaun hátíðarinnar og sama ár fékk Mýrin í leikstjórn Baltasars Kormáks aðalverðlaun hátíðarinnar, The Breaking Waves Award.

Þess má geta að í ár var Baltasar Kormákur formaður dómnefndar hátíðarinnar þar sem hann er leikstjóri sigurmyndarinnar frá því í fyrra.

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar