FRÉTTIR
Agnes Johansen fulltrúi Íslands í "Producers on the Move"
Agnes Johansen hjá Sögn verður fulltrúi Íslands í hinu árlega verkefni Producers on the Move sem rekið er á vegum European Film Promotion á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Alls taka 18 framleiðendur frá jafn mörgum löndum Evrópu þátt í verkefninu og mun þeim gefast tækifæri til að kynna sig og verk sín fyrir um eitt hundrað öðrum framleiðendum frá Evrópulöndunum.
Þetta er fimmta árið sem European Film Promtion stendur fyrir þessu verkefni sem ætlað er að efla tengsl milli framleiðenda í Evrópulöndunum. Skilyrði fyrir þátttöku er að viðkomandi verður að hafa átt mynd nýlega á alþjóðlegri kvikmyndahátíð, selt mynd sína nýlega á erlendum markaði eða að mynd hans hafi notið velgengni í miðasölunni heimafyrir.
Þátttakendur í Producers on the Move munu einnig taka þátt í hinu nýja Producer's Network sem hefur göngu sína á næstu Cannes hátíð í maí.

