Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Children

FRÉTTIR

SKRÁNING KVIKMYNDA Á NORDISK PANORAMA 2009 ER HAFIN!

nordiskpanorama

17.4.2009

Nordisk Panorama snýr aftur til Reykjavíkur í ár og er það mikið gleðiefni að 20. norræna stutt- og heimildamyndahátíðin sé haldin hér á landi en hún verður haldin dagana 25. – 30. september.

Nú hefur verið opnað fyrir skráningu mynda á hátíðina og eru framleiðendur og leikstjórar stutt- og heimildamynda eindregið hvattir til að skrá myndir sína. Skilyrði fyrir skráningu er að mynd sé með enskum texta eða á ensku. Skráningu líkur 15. maí 2009.

Hefð hefur myndast fyrir því að Filmkontakt Nord skipuleggi myndamarkað á hátíðinni en á honum gefst hátíðargestum tækifæri til þess að sjá alla nýjustu titlanna. Markaðurinn hefur verið gríðarlegt tækifæri fyrir kvikmyndagerðamenn að sýna myndir sínar fjárfestum, kaupendum og dreifendum. Allar þær myndir sem skráðar eru á markaðinn fara sjálfkrafa í myndasafn og rafrænan grunn Filmkontakt Nord sem er nýttur árið um kring fyrir alþjóðlegar hátíðir og markaði. Þær myndir sem valdar eru til keppni eru sjálfkrafa skráðar á markaðinn en aðrar myndir eru eingöngu á markaðnum ef hakað hefur við þann möguleika í umsóknarferlinu.

Eins og kom fram rennur umsóknarfresturinn út 15. maí og er hægt að skrá myndir rafrænt á heimasíðu Filmkontakt Nord: www.filmkontakt.com/fkn-139/

Reglugerð hátíðarinnar og nánari upplýsingar er hægt að nálgast á þessari síðu: www.filmkontakt.com/fkn-187/

Senda á öll umsóknargögn önnur en rafræn, auk tveggja DVD diska, á eftirfarandi heimilisfang:

Filmkontakt Nord

Vognmagergade 10

DK-1120 Copenhagen K

Denmark

Sími: +45 33 11 51 52

Tölvupóstur: film@filmkontakt.com

Nánari upplýsingar um hátíðina er hægt að finna á heimasíðu Nordisk Panorama, www.nordiskpanorama.com. Þar eru einnig birtar fréttir af hátíðinni.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar