Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

The Sea

FRÉTTIR

Tvær íslenskar mynd í keppni í Oberhausen

27.4.2004

Stuttmyndahátíðin í Oberhausen í Þýskalandi verður haldin í 50. sinn dagana 29. apríl til 4. maí 2004. Hátíðin er ein elsta og kunnasta stuttmyndahátíð í heimi. Að þessu sinni voru sendar inn 4000 myndir frá 87 þjóðlöndum í alþjóðlegu keppnina. Valdar voru 68 myndir frá 35 löndum til að sýna og keppa í 10 flokkum. Tvær íslenskar stuttmyndir voru valdar í keppni í Oberhausen. Það er myndin Burst eftir Reyni Lyngdal, sem keppir í alþjóðlega flokknum og myndin Bjargvættur eftir Erlu Skúladóttur sem keppir í flokki barna- og unglingamynda. Þess ber að geta að barna- og unglingaflokkurinn er einn sá vinsælasti meðal áhorfenda í Oberhausen. Reynir Lyngdal, leikstjóri Burst mun fylgja mynd sinni eftir á Oberhausen stuttmyndahátíðinni. Frekari upplýsingar um hátíðina er að finna á http://www.kurzfilmtage.de/.

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar