Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

TVÆR ÍSLENSKAR STUTTMYNDIR Á HÁTÍÐ Í VARSJÁ

warsawfilmfestival

4.5.2009

Tvær íslenskar stuttmyndir, Jeffrey og Beta eftir Guðmund Arnar Guðmundsson og Aldrei stríð á Íslandi eftir Braga Þór Hinriksson, hafa þegið boð um þáttöku í keppni í stuttmyndaflokki á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Varsjá, WFF, sem fer fram í 25. skipti nú í október.

Jeffrey og Beta segir frá ungum Bandaríkjamanni á Íslandi, Jeffrey, sem skráir sig á sjálfshjálparnámskeið í von um að ná betur til kærustunnar sinnar. Beta er kennari á námskeiðinu og eftir því sem líður á fer Jeffrey að efast um að hún sé í raun að hjálpa honum til að ná markmiði sínu. Með hlutverk Jeffrey fer Seth Sharp og með hlutverk Betu fer Gréta Sandra Davíðsson. Aldrei stríð á Íslandi gerist í miðri borgarastyrjöld í Reykjavík eftir byltinguna miklu. Þegar stríðandi fylkingar kljást í landi sem hefur aldrei átt her og alltaf boðað frið verður tilgangsleysið skýrt í augum hermanns sem aldrei hefur drepið mann. Myndin var sýnd í kvikmyndahúsum hérlendis á undan Clint Eastwood-myndinni Gran Torino. Með aðalhlutverk í myndinni fara Hafsteinn Gunnar Hafsteinsson og Guðmundur Jónas Haraldsson.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar